Háskóli Íslands

Sigrúnarsjóður

Tilgangur og markmið Sigrúnarsjóðs er að efla og styrkja rannsóknir í félagsráðgjöf á sviði barna- og fjölskyldumálefna. Megintilgangurinn er að efla doktorsnám og sérfræðiþekkingu í félagsráðgjöf með því  að veita fjárstyrki til:

  1. doktorsverkefna í félagsráðgjöf sem snerta  málefni barna- og fjölskyldna.
  2. frumrannsókna, þ.e. sem fela í sér nýsköpun þekkingar á sviðinu.
  3. aðferðaþróunar á sérsviðum sem varða hagsmuni barna og fjölskyldna.
  4. þróunar- og tilraunaverkefna sem efla fræðilegt og faglegt framlag á sviðinu.
  5. fræðsluverkefna á sérsviðum félagsráðgjafar sem varða hagsmuni barna og fjölskyldna.

Markmiðunum með stofnun sjóðsins skal náð með beinum fjárframlögum og styrkjum sem nánar greinir í skipulagsskrá þessari.

Sjóðurinn var stofnaður árið 2012 af Sigrúnu Júlíusdóttur, prófessor í félagsráðgjöf, en hún er einnig stofnandi Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd (RBF) við Háskóla Íslands. Sigrún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar menntunar, rannsókna og fræða í félagsráðgjöf.

Sigrúnarsjóður heyrir undir Styrktarsjóði Háskóla Íslands frá árinu 2016. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagssrá.

Í stjórn sjóðsins sitja:

  • Dr. Sigurveig H. Sigurðardóttir dósent
  • Helga Sól Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og lektor
  • Halldór Sigurður Guðmundsson, félagsráðgjafi og dósent

Skipulagsskrá (.pdf)

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is