Hagnýtt 100% fjarnám fyrir stjórnendur og millistjórnendur.

Af hverju Stjórnendanám?

100% Fjarnám

Stjórnendanámið er í 100% fjarnámi. Eina sem þú þarft er virk nettenging og vilji til að verða betri stjórnandi eða millistjórnandi. Nemendur hitta kennarann sinn og samnemendur einu sinni í viku í gegnum netið. Að öðru leyti ræður þú þér alveg sjálf/ur.

Hagnýtt og sveigjanlegt nám

Við viljum vinna með þér. Námið er byggt upp fyrir fólk í vinnu, þar af leiðandi aðlögum við okkar verkefni að þér og þínum vinnustað. Með því færðu strax innsýn í hvernig hægt er að nýta inntak námsins á þínum vinnustað.

Búið til með þarfir vinnumarkaðarins í huga

Þegar Stjórnendanámið var búið til var leitað til stjórnenda og millistjórnenda til að fá þeirra skoðun á hvaða kunnáttu vantaði inn á vinnumarkaðinn. Þær niðurstöður voru notaðar til að búa til inntak námsins.
Við eigum í stöðugu samtali við vinnumarkaðinn og þróum okkur áfram samhliða honum.

Næstu lotur

Stjórnendanám Lota 1 – September
Card Image

Verð fyrir lotu er 190.000 kr. Hægt er að greiða með kreditkorti eða bankakröfu.    Fjallar um einstaklinginn í þeirri stöðu sem hann gegnir; „hvers vegna…

  • kr 190.000
  • Hefst: 01-09-2024
Stjórnendanám Lota 5 Fyrirtækið í nútíð og framtíð
Card Image

Sjónum beint að fyrirtækinu í nær- og fjærumhverfi sínu, eigendum, viðskiptavinum, keppinautum, birgjum, stofnunum og stjórnvöldum. Fjallað er um þessa þætti í ljósi stefnu skipulagseiningar,…

Stjórnendanám Lota 2 – Apríl
Card Image

Fjallar um meginatriði mannauðsstjórnunar, bæði í skipulagseiningu (deild, sviði, útibúi) og skipulagsheild ásamt velferð, heilsufari, fjarvistum og ýmsum vandamálum sem fyrirtæki og starfsmenn glíma við - ásamt lausnum.

  • kr 190.000
  • Hefst: 14-04-2024
Stjórnendanám Lota 3 – Fyrirtækið Skipulag
Card Image

Fjallað um innra skipulag fyrirtækja sem stjórnandi/millistjórnandi þarf að hafa þekkingu á og hæfni til að takast á við hverju sinni, s.s stjórnkerfisskipulag og ákvarðanatöku á…

  • kr 190.000
  • Hefst: 13-10-2024
Allar loturnar í Stjórnendanáminu
Card Image

Skráðu þig í allar loturnar í Stjórnendanáminu með einni greiðslu.  Hægt er að taka námið á einu og hálfu ári en nemendur hafa í mesta…

Hvað segja nemendur okkar?

Kristjana Jónsdóttir Verslunarstjóri Landstólpa Egilsstöðum

Námið hefur hjálpað mér svo mikið að það er himinn og haf á milli þess hvað vinnan mín er orðin þægilegri, álagið orðið hæfilegt og ég næ að innleiða strax það sem við erum að læra. Ég lærði mikið af því að skipuleggja mig og er það að nýtast mér vel, aukið sjálfstraust og trú…

Einar Logi Friðjónsson Mjólkurfræðingur hjá MS á Akureyri

Ég valdi námið þar sem að ég stefni á að fá stjórnendastöðu einn daginn og tel ég að þetta nám hjálpi mér að ná mínu markmiði að verða stjórnandi. Námið hefur opnað dyr sem ég var ekki að spá í áður og ég er alltaf að nota það sem ég er að læra í náminu á…

Jónína H. Jónsdóttir Verkefnastjóri hjá Stjórnendafélagi Suðurlands

Stjórnendanámið hefur eflt mig í samskiptum og ákvarðanatöku við mína félagsmenn. Fjarnámið hentar mér mjög vel og er frábært fyrir landsbyggðarfólk.  Það að vera með vikulega fundi á netinu gerir þetta skemmtilegt og það styrkir mann að heyra sjónarmið annarra.  Aðgengi að námsefni er gott og til fyrirmyndar hvernig innri vefur námsins var kynntur í…

Arnar Ingi Lúðvíksson Verkstjóri hjá Nóa Siríus

Þær lotur sem eru búnar hafa klárlega hjálpað mér í starfi, þar sem það er farið yfir flestar þær aðstæður  sem koma og geta komið upp á vinnustað. Þetta nám er í 100% fjarnámi og finnst mér það mjög gott. Zoom fundirnir eru fróðlegir þar sem allir hittast þar og fara yfir og miðla sinni…

Stjórnendafræðslan

Stjórnendanámið er á vegum Starfsmenntasjóðs Samtaka Atvinnulífsins (SA) og Sambands stjórnendafélaga (STF) í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri. Starfsmenntasjóður Sambands Stjórnendafélaga og Samtaka Atvinnulífsins veitir allt að 80% styrk fyrir félagsmenn sína. Önnur stéttarfélög greiða í samræmi við réttindi sinna félagsmanna.

Please enter your name.
Please enter a valid phone number.
Please enter a message.