VoR-teymi

Vettvangs- og ráðgjafateymi (VoR) aðstoðar fólk sem er heimilislaust og með vímuefnavanda og geðvanda. Teymið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning á vettvangi. 

Hvernig fæ ég þjónustu VoR-teymis?

VoR-teymið tekur við beiðnum um þjónustu frá ýmsum aðilum, til dæmis frá ráðgjöfum á miðstöðvum velferðarsviðs, Fangelsismálastofnun, Frú Ragnheiði o.fl. Ekki er sótt um þjónustuna beint til teymisins.

Hvaða þjónusta er í boði?

VoR-teymið starfar meðal annars með fólki í neyðarskýlum, smáhúsum og í íbúðakjörnum. Það á líka samstarf við ráðgjafa á miðstöðvum velferðarsviðs og bregst við aðstæðum þegar á þarf að halda. Teymið veitir einnig ákveðnum hópi fólks í sjálfstæðri búsetu stuðning og ráðgjöf í anda hugmyndafræðinnar um Húsnæði fyrst.

Hvar fæ ég frekari upplýsingar?