Veggjakrot

Vantar þig aðstoð við hreinsun á veggjakroti? Reykjavíkurborg aðstoðar við fyrstu hreinsun á skemmdarverkum sem hafa verið máluð eða spreyjuð á húsveggi, girðingar og undirgöng í miðborginni í samstarfi við íbúa, rekstraraðila og/eða fasteignaeigendur. Aðstoðin er ekki síst í formi ráðgjafar.

Hvernig fæ ég aðstoð?

  • Þú, hvort sem þú ert íbúi, húseigandi og/eða rekstraraðili, setur þig í samband við Reykjavíkurborg og biður um aðstoð í gegn um ábendingavef borgarinnar.
  • Verktaki hefur samband. Tímasetning fyrir hreinsun fundin, kostnaðaráætlun gerð og skrifað undir samkomulag í tengslum við hreinsunina.
  • Skoða samkomulag
  • Fara á ábendingavef

Borgin hreinsar einnig af

  • Fasteignum borgarinnar, þar á meðal grunn- og leikskólum.
  • Umferðarmannvirkjum, þar á meðal undirgöngum, umferðarbrúm og hljóðmönum.
  • Bekkjum, ruslastömpum, ljósastaurum, stöðumælum og umferðarskiltum.
  • Leiktækjum utanhúss við leikskóla og á gæsluvöllum og opnum leiksvæðum í eigu borgarinnar.
  • Útilistaverkum á opnum svæðum og á lóðum stofnana borgarinnar.
  • Ýmsum mannvirkjum á opnum svæðum og á lóðum stofnana borgarinnar.