Orku- og veituþjónusta er sú grunnþjónusta sem allt samfélagið byggir á og er undirstaða lífsgæða í landinu.
Skilvirkur orku- og veitugeiri er einnig forsenda þess að standast alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum og til að nýta þau sóknarfæri sem gefast nú þegar eftirspurn eftir grænum lausnum eykst um allan heim.
Samorka vill því kynna helstu tækifæri og viðfangsefni sem blasa við í þessum málaflokki í aðdraganda alþingiskosninga.
Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, kynnir áherslu Samorku.