Orku- og veitumál koma við sögu í daglegu lífi landsmanna á hverjum degi. Auk þess eru orku- og veitumál líka loftslagsmál. Lagaumgjörð þessarar grunnþjónustu samfélagsins skiptir miklu máli og því er jákvætt og mikilvægt að þessi mál séu rædd af almenningi og stjórnmálafólki í aðdraganda kosninga. Samorka hefur því tekið saman nokkrar megin áherslur til að leggja inn í þjóðfélagsumræðuna.
Áherslunar voru kynntar á fundi Samorku, Tölum um græna framtíð, miðvikudaginn 25. ágúst.