Góð ávöxtun hvert sem litið er

10. janúar 2020

Góð ávöxtun hvert sem litið er
Hvítskerkur. Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Árið 2019 fer í sögubækurnar sem eitt besta ár fyrir fjárfesta frá upphafi. Góð ávöxtun var á innlendum og erlendum mörkuðum á árinu. Allar ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins nutu góðs af hagstæðri þróun á mörkuðum og skiluðu ágætri ávöxtun. Ævisafn I hækkaði mest eða um 17,6% sem jafngildir um 14,5% raunávöxtun.

Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI hækkaði um 27,7% í USD og er það mesta hækkun sem verið hefur síðastliðin tíu ár en hún hefur hækkað að jafnaði um 9,5% í USD á ári síðastliðin tíu ár. Heimsvísitalan hækkaði um 32,9% í íslenskum krónum þar sem íslenska krónan veiktist um 4,1% gagnvart USD á árinu. Heimsvísitalan hefur hækkað um 9,1% að jafnaði á ári síðastliðin tíu ár í íslenskum krónum. Einnig var góð ávöxtun á innlendum hlutabréfamarkaði og hækkaði heildarvísitala aðallista um 27,8% á árinu. Heildarvísitala innlendra hlutabréfa hefur hækkað um 13,6% á ári að jafnaði síðastliðin tíu ár.

Ávöxtun á innlendum skuldabréfamarkaði var einnig góð, einkum vegna lækkunar á ávöxtunarkröfu langra skuldabréfa. Innlendur skuldabréfamarkaður hefur því skilað góðum gengishagnaði sem bættist við ávöxtun skuldabréfanna. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 8,3% og vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng óverðtryggð skuldabréf um 23%. Vísitala langra verðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað um 8,5% að jafnaði á ári síðastliðin tíu ár.

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá        9% til 17,6%. Hækkun á erlendum og innlendum hlutabréfamörkuðum hafði mest áhrif til hækkunar á gengi safnanna.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 6,2%. Lækkun á ávöxtunarkröfu langra verðtryggðra skuldabréfa og hækkun á vísitölu neysluverðs skýra að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 6,3%. Lækkun á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra skuldabréfa skýrir að mestu ávöxtun safnsins.
Innlána-safn Innlánasafnið hækkaði um 4,3%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 94% af eignum safnsins.
Húsnæðis-safn Húsnæðissafnið hækkaði um 5,5%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.


Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

 

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.