Námið
Rannsóknir
HR
Neon
Iðn- og tæknifræðideild

Upplýsingatækni í mannvirkjagerð

Námstími
1 ár
Einingar
30 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt
Nei

Hvað læri ég?

Hagnýtt nám fyrir atvinnulífið

Upplýsingalíkön mannvirkja (BIM – Building Information Model) gera aðilum í byggingariðnaði mögulegt að nýta möguleika upplýsingatækni á sviði hönnunar, framkvæmda og reksturs með úrbætur og gæði að leiðarljósi.

Í þessu hagnýta námi öðlast nemendur reynslu, þekkingu og færni í að leysa flókin og þverfagleg vandamál í mannvirkjagerð og stjórna verkefnum með stafrænum lausnum og BIM (Building Information Model).

Námið hentar sérstaklega vel þeim sem starfa í byggingariðnaði og við mannvirkjagerð. Má þá nefna byggingarstjóra, byggingariðnfræðinga, tæknifræðinga, verkfræðinga, arkitekta og byggingafræðinga. Námið hentar einnig þeim sem vilja sérhæfa sig í þeim stafrænu umbreytingum sem nú eiga sér stað.

Fjórða iðnbyltingin í mannvirkjagerð

Notkun stafrænna þrívíðra upplýsingalíkana er aðferðafræði við hönnun mannvirkja sem hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi. Hún eykur gæði hönnunar og framkvæmda og stuðlar að hagkvæmari byggingum með tilliti til rekstrar og líftíma.

Upplýsingatækni í mannvirkjagerð býður upp á ótal möguleika í hagræðingu og virðissköpun fyrir byggingariðnaðinn í heild sinni.

Ingibjörg Birna Kjartansdóttir
Kennari í námsbrautinni og formaður BIM Ísland
Aukin gæði og hagkvæmni

Hagnýting og innleiðing á upplýsingatækni og notkun á líkönum í mannvirkjagerð gefur fyrirtækjum í mannvirkjagerð ótal möguleika á að betrumbæta eigin þjónustu, eiga samstarf við aðra hagaðila innan byggingariðnaðarins og styrkja stöðu sína á erlendum markaði.

Iðn- og tæknifræðideild HR

HR útskrifar flesta nemendur í tæknigreinum á háskólastigi á Íslandi. Í tækninámi við HR er lögð sérstök áhersla á verklega hluta námsins við kennslu undirstöðugreina og hagnýtra fag- og tæknigreina. Iðn- og tæknifræðideild er aðili að alþjóðlegu samstarfsneti um þróun tæknináms sem kallast CDIO (e. Conceive, Design, Implement, Operate). Í netinu eru um 100 framsæknir háskólar og megináhersla er lögð á gæði náms í tæknigreinum með því að setja undirstöðugreinar í samhengi við raunveruleg viðfangsefni.

Hvernig læri ég?

Námið er kennt samhliða vinnu. Kennt er tvo eftirmiðdaga í viku kl. 16:00 - 19:00 í húsnæði HR við Nauthólsvík. Ekki er boðið upp á fjarnám.

Námið er kennt í lotum, það er eitt námskeið er kennt í einu út önnina. Önnin tekur alls 15 vikur og hefst haustönn um miðjan ágúst og lýkur í enda nóvember. Vorönn hefst í byrjun janúar og lýkur í  maí. Nánari upplýsingar um dagatal skólaársins má finna á vef HR.

Námslengd er 2 annir og er námið 30 ECTS.

Hagnýtt nám fyrir atvinnulífið - 30 ECTS

Upplýsingalíkön mannvirkja (BIM – Building Information Model) gera aðilum í byggingariðnaði mögulegt að nýta möguleika upplýsingatækni á sviði hönnunar, framkvæmda og reksturs, með úrbætur og gæði að leiðarljósi.

Í þessu hagnýta námi öðlast nemendur reynslu, þekkingu og færni í að leysa flókin og þverfagleg vandamál í mannvirkjagerð og stjórna verkefnum með stafrænum lausnum og BIM (Building Information Model) - upplýsingalíkönum í mannvirkjagerð.

Inntökuskilyrði

Umsækjendur skulu hafa lokið einhverju af neðantöldu:

  • Burtfararprófi í iðngrein á byggingarsviði
  • Byggingafræði
  • Tækniteiknaranámi
  • Iðnfræði
  • Tæknifræði
  • Verkfræði
  • Arkitektanámi

Krafist er lágmarkskunnáttu í BIM-studdu hönnunarverkfæri eins og Revit eða Tekla Structures og/eða reynslu í BIM studdu umhverfi/3D umhverfi.

Að námi loknu

Notkun líkana, samningagerð og stjórnun gagna

Nemendur eiga að námi loknu að þekkja sögu, meginreglur og aðferðir sem liggja að baki BIM og hvernig þeim er beitt á mismunandi stigum í mannvirkjagerð. Þar sem námið er hagnýtt læra nemendur að opna, rýna, bæta við og nýta sér líkönin. Nemendur læra helstu aðgerðir, getu líkana, helstu staðla og takmarkanir. 

Fjallað er um verklag í samningagerð og stjórnun hönnunar og framkvæmda, helstu byggingaflokkunarkerfi og hvernig þeim er beitt og starfssvið/hlutverk BIM-stjóra í verkefnum.

Að hafa umsjón með stafrænum gögnum verður nauðsynlegt á komandi árum enda nýtast gagnabankar í öllum atvinnugreinum, ekki síst til ákvörðunartöku. Í náminu læra nemendur að stjórna og halda utan um gögn og samskipti í mannvirkjagerð. Jafnframt er kennt hvernig megi nota BIM-studdan hugbúnað til samskipta.

Hefur þú spurningar um námið?

Skipulag náms

Námið er kennt samhliða vinnu. Kennt er tvo eftirmiðdaga í viku kl. 16:00 - 19:00 í húsnæði HR við Nauthólsvík. Ekki er boðið upp á fjarnám.

Námið er kennt í lotum, það er eitt námskeið er kennt í einu út önnina. Önnin tekur alls 15 vikur og hefst haustönn um miðjan ágúst og lýkur í enda nóvember. Vorönn hefst í byrjun janúar og lýkur í  maí. Nánari upplýsingar um dagatal skólaársins má finna á vef HR.

Haust
Upplýsingatækni í mannvirkjagerð – Grunnaðferðir og hugtök
UM ITÁ1000 / 2 ECTS
Upplýsingatækni í mannvirkjagerð – Aðgerðir, þróun og tæknivæðing
UM ALM1003 / 6 ECTS
Upplýsingatækni – Samræming og gæði
UM SAM1002 / 3 ECTS
Upplýsingatækni – Áætlanagerð
UM ÁLG1002 / 4 ECTS
Vor
Upplýsingatækni í fasteignastjórnun
UM FST1000 / 2 ECTS
Upplýsingatækni – Mælitækni og notkun á verkstað
UM MNV1001 / 3 ECTS
Upplýsingatækni – Stjórnun, stefnumótun og innleiðing
UM SSI1002 / 3 ECTS
Lokaverkefni
UM LOK1003 / 6 ECTS
Námstími
1 ár
Einingar
30 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt
Nei

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður

Í háskólabyggingu HR er lesaðstaða og bókasafn, aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.

Kennslustofur og lesaðstaða

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.

Kennarar

Ingibjörg Birna Kjartansdóttir
Stundakennari, MSc í Construction Management, byggingafræðingur og með kennsluréttindi. Þróunarstjóri BIM og VDC hjá Ístak, frv. formaður BIM Ísland.
Haraldur Arnórsson
Stundakennari, MSc í upplýsingatækni í mannvirkjagerð, BSc í byggingafræði. BIM/VDC sérfræðingur hjá ÍAV og stjórnarmaður í BIM Ísland.
Guðmundur Jón Ludvigsson
Stundakennari, MSc í byggingarverkfræði og framkvæmdastjóri MainManager í Danmörku.
Sjá fleiri kennara

Af hverju upplýsingatækni í mannvirkjagerð?

  • Háskólanám sem veitir 30 ECTS einingar
  • Nemendur læra af sérfræðingum úr atvinnulífinu
  • Góð aðstaða
Fara efst