top of page

ISO 9001:2015 GÆÐASTJÓRNUNAR
STAÐALLINN

Fyrir hverja er námskeiðið?

Fyrir þá sem vilja öðlast þekkingu á gæðastjórnunarstaðlinum
ISO 9001:2015 og viðurkenndri aðferðafræði við innleiðingu hans.

Hvert er markmið námskeiðsins?

Að þátttakendur þekki kröfur ISO 9001:2015 staðalsins og þær leiðir sem hentugar eru til að mæta þeim. Einnig að þátttakendur öðlist nauðsynlega færni til að vinna að innleiðingu gæðastjórnunarstaðalsins.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hugmyndafræði staðalsins.

  • Kröfur staðalsins.

  • Stöðugreiningar fyrir innleiðingu.

  • Skipulagning innleiðingarferils með aðstoð árangursríkrar breytingastjórnunar.

  • Mótun gæðastefnu og markmiða.

  • Ábyrgðir og völd innan skipulagsheildar.

  • Aðferðafræði við áhættugreiningu.

  • Kerfisbundin rýni á gæðastjórnunarkerfinu.

  • Stöðugar umbætur.

Aðrar upplýsingar:

Lengd námskeiðsins eru 6 tímar, einn dagur. Kennt er frá kl. 09:00 - 16:00, hádegishlé er frá kl. 12:00 - 13:00.

Leiðbeinandi er Garðar Jónsson, stjórnunar- og rekstrarráðgjafi og fyrrum gæðastjóri hjá Matvælastofnun.

Verð er 95.000 kr. fyrir hvern þátttakanda - snemmskráningargjald til 15. september 2023 er 79.000 kr.


Þátttakendur fá skírteini að námskeiði loknu.

Næsta námskeið verður haldið 27. september 2023 að Laugavegi 163, Reykjavík.  

bottom of page