Innlent

Skora á Per­sónu­vernd að banna Google Analytics

Bjarki Sigurðsson skrifar
Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna. Vísir/Sigurjón

Persónuverndaryfirvöld í Danmörku hafa gefið út að notkun danskra vefsíðna á vefvöktunarforritinu Google Analytics brýtur í bága við persónuverndarlög landsins. Neytendasamtökin vilja banna notkun forritsins hér á landi.

Samkvæmt tilkynningu frá Neytendasamtökunum tóku Danir þetta skref í kjölfar þess að Austurríkismenn, Frakkar og Ítalir bönnuðu allir notkun forritsins eftir að hafa skoðað allar stillingar og skilmála forritsins. Vinnsla persónuupplýsinga Google Analytics samrýmist ekki persónuverndarreglugerð ESB, GDPR.

Í kjölfar dóma í Austurríki og Frakklandi gaf Persónuvernd út tilkynningu sem Neytendasamtökin segja að megi túlka sem viðvörun til íslenskra vefumsjónarmanna. Líklegast brjóti notkun íslenskra vefsíðna á Google Analytics sömu lög.

Neytendasamtökin skora á Persónuvernd að leggja tafarlaust bann við notkun Google Analytics hér á landi. Samkvæmt könnun Neytendasamtakanna nota nánast öll íslensk fyrirtæki og stofnanir forritið, þar á meðal Alþingi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×